Línumaðurinn Jón Ómar Gíslason hefur gengið til liðs við austurríska úrvalsdeildarfélagið Bregenz frá Haukum og verður þar með annar Íslendingurinn sem gengur í raðir Bregenz í sumar en áður hafði Guðmundur Bragi Ástþórsson gengið í raðir félagsins. Jón Ómar, sem er 26 ára gamall, kemur til félagsins eftir að hafa orðið bikarmeistari með Haukum á síðustu leiktíð en eftir tímabilið komst Jón Ómar og Haukar að samkomulagi um að rifta samningi hans við félagið. Jón Ómar var einungis eitt ár í herbúðum Hauka. Þjálfari Bregenz, Julian Rauch, segist afar ánægður með komu Íslendingsins. „Jón Ómar hefur nákvæmlega þá eiginleika sem við leitum að fyrir okkar leikstíl. Hann fellur mjög vel að þeim áætlunum sem við höfum og við hlökkum mikið til að fá hann til liðsins,“ sagði Rauch. Um leið og Bregenz staðfesti komu Jóns Ómars tilkynnti félagið að ítalski línumaðurinn Tommaso Romei yfirgæfi félagið og gengi til liðs við þýska 2. deildarfélagið VfL Potsdam. Jón Ómar skoraði 29 mörk í 29 leikjum með Haukum í Olís-deildinni og úrslitakeppninni í vor en Haukar féllu úr leik í undanúrslitum eftir tap gegn Haukum í oddaleik. Ljóst er að þrír Íslendingar leika í austurrísku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð því Tumi Steinn Rúnarsson spilar einnig í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.