Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Fram lagt fram samningstilboð til markvarðarins Sigurjóns Guðmundssonar, sem er án félags eftir að samningur hans við norska meistaraliðið Kolstad rann út í sumar. Sigurjón hefur verið orðaður við endurkomu í íslenskan handbolta undanfarna mánuði en Íslandsmeistarar Vals hafa sýnt leikmanninum áhuga eins og Handkastið hefur greint frá. Í viðtali við Handkastið í byrjun sumars sagði Sigurjón þó að hans fyrsti kostur væri að halda áfram atvinnumennsku erlendis. Þar viðurkenndi hann hinsvegar að hafa heyrt frá íslenskum félögum. Fram er þessa dagana í leit að nýjum markverði en ljóst er að Breki Hrafn Árnason yfirgefur félagið í sumar og gengur til lið við portúgalska stórliðsins Benfica. Leit Framara að eftirmanni Breka hefur staðið yfir um nokkurt skeið. Samkvæmt heimildum Handkastsins reyndi félagið einnig að fá unglingalandsliðsmarkvörðinn Alexander Ásgrímsson frá ÍR. ÍR hafnaði hins vegar öllum viðræðum um möguleg kaup Framara á markverðinum. Alexander er þessa dagana í eldlínunni með U20 ára landsliði Íslands en ÍR leikur í Grill66-deildinni á næstu leiktíð eftir að hafa fallið úr Olís-deildinni á síðustu leiktíð. Nú virðist athyglin því hafa beinst að Sigurjóni Guðmundssyni, sem varð norskur meistari með Kolstad á síðustu leiktíð og er nú laus allra mála á félagaskiptamarkaðnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.