Fannst þetta vera rétta skrefið fyrir minn feril
Þór

Hinn tvítugi danski leikmaður Mikkel Jensen er nýjasti liðsmaður Þórs Akureyrar. Jensen, sem er 192 sentímetra há hægri skytta frá Silkeborg, hefur undanfarin ár leikið með SHEA, akademíu Skanderborg, og fékk nýverið sínar fyrstu mínútur með meistaraflokki félagsins.

Aðspurður hvers vegna hann hafi ákveðið að flytja til Íslands segir Jensen að tækifærið hafi einfaldlega verið of spennandi til að hafna.

„Þetta er frábært tækifæri til að ögra sjálfum mér í nýju landi. Eftir að hafa rætt við félagið og kynnst metnaði þess fannst mér þetta vera rétta skrefið fyrir bæði feril minn og mín eigin markmið.“

Áður en hann tók ákvörðunina leitaði hann einnig ráða hjá fólki sem þekkir til íslenska handboltans.

„Já, ég ræddi við nokkra sem hafa reynslu af deildinni. Þeir sögðu mér að hún væri krefjandi, líkamlega erfið og mjög góður staður fyrir unga leikmenn til að þróast.“

Þótt Jensen hafi ekki enn komið til Íslands segist hann hafa kynnt sér bæði deildina og landið.

„Ég veit að þetta er sterk deild sem margir leikmenn hafa notað hana sem stökkpall á ferlinum. Ég veit líka að Ísland er fallegt land með magnaða náttúru og frábæra handboltahefð. Ég hlakka mikið til að kynnast menningunni og hitta nýtt fólk.“

Jensen lýsir sér sem leikmanni sem reynir ávallt að vera skrefi á undan mótherjanum. „Ég er hægri skytta og reyni alltaf að gera það sem er liðinu fyrir bestu. Ég geri allt sem ég get til að hjálpa liðinu að vinna.“

Daninn mætir til Akureyrar 15. júlí og segist hlakka til að hefja undirbúninginn með nýjum liðsfélögum.

Spurður um markmið sín fyrir komandi tímabil nefnir hann bæði persónuleg og sameiginleg markmið.

„Persónulega vil ég bæta á mig vöðvum og verða fljótari leikmaður. Síðan myndi ég virkilega vilja sjá okkur, Þór Akureyri, komast í úrslitakeppnina.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top