Elís Þór meiddist gegn Dönum – Ekki með á morgun
Egill Bjarni Friðjónsson

Eyjamaðurinn, Elís Þór Aðalsteinsson meiddist á hné í upphafi seinni hálfleiks í tapi U20 ára landsliðsins gegn Dönum í lokaleik þeirra í milliriðli Evrópumótsins.

Ágúst Jóhannsson þjálfari liðsins staðfesti í samtali við Handkastið í morgun að Elís yrði ekki með liðinu gegn Noregi í leiknum á morgun en Ísland mætir Noregi klukkan 9:00 í fyrramálið. Ísland leikur nú um 9.sætið á mótinu.

,,Elís meiddist í upphafi seinni hálfleiks á móti Dönum og hann hvílir leikinn á morgun og síðan sjáum við hvernig hlutirnir þróast. Hann er í góðum höndum hjá sjúkraþjálfara liðsins og það verður passað vel upp á hann. Við tökum síðan ákvörðun með framhaldið dag frá degi," sagði Ágúst Jóhannsson.

Aðspurður út í stöðuna á öðrum leikmönnum liðsins sagði Ágúst að allir aðrir leikmenn liðsins væru í fínu standi.

,,Við vorum að klára lyftingaræfingu og smá fund og erum að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Noregi.”

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top