Haukar fara beint í 2. umferð Evrópubikarsins
Sævar Jónasson

Dregið hefur verið í fyrstu umferðir Evrópubikars karla fyrir keppnistímabilið 2026/27 og ljóst er að bikarmeistarar Hauka sem er eina íslenska karla liðið í keppninni í ár hefja leik í 2. umferð keppninnar.

FH og Valur taka síðan þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Haukar er meðal þeirra 45 liða sem fara sjálfkrafa inn í aðra umferð og sleppur því við að leika í fyrstu umferð keppninnar. Alls taka 83 lið þátt í Evrópubikarnum í vetur, þar af 38 lið sem hefja keppni í 1. umferð.

Leikir 2. umferðar fara fram dagana 17.–18. október og 24.–25. október, en þá hefst Evrópuvegferð Hauka á nýju tímabili.

Haukar komust alla leið í átta liða úrslit Evrópubikarsins á þar síðasta tímabili áður en liðið féll úr leik.

HC Alkaloid frá Norður-Makedóníu er eina félagið með íslenskum leikmanni sem tekur þátt í keppninni en Úlfar Páll Monsi Þórðarson leikur með liðinu.

Evrópubikarinn er þriðja sterkasta félagsliðakeppni Evrópu á vegum Evrópska handknattleikssambandsins (EHF). GRK Ohrid frá Norður-Makedóníu varð Evrópubikarmeistari á síðasta keppnistímabili en Valur vann keppnina tímabili 2023/2024.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top