Ekkert verður úr því að markvörðurinn, Sigurjón Guðmundsson haldi heim til Íslands frá Kolstad en hann hefur verið eftirsóttur af félögum í Olís-deildinni. Félög á borð við Val og Fram hafa sýnt leikmanninum áhuga. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Sigurjón hinsvegar samið við félag í Noregi og er gert ráð fyrir því að hann skrifi undir samning við félagið í dag og verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins í kjölfarið. Sigurjón sem er uppalinn hjá HK og er sonur Guðmundar Hrafnkelssonar hefur heldur betur slegið í gegn með frammistöðu sinni hjá norska stórliðinu Kolstad. Eftir að Andreas Palicka yfirgaf félagið í janúar vegna fjárhagsvandræða fékk Sigurjón stærra verkefni hjá liðinu og átti hann frábæra leiki þegar Kolstad tryggði sér norska meistaratitilinn eftir sigur á Ísaki Steinssyni og félögum í Drammen. Handkastið hafði áður greint frá því að bæði Valur og Fram hafi verið í sambandi við leikmanninn og eflaust hafa fleiri félög á Íslandi heyrt í honum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.