U20 strákarnir mæta Noregi – Gætu mætt Ísrael
HSÍ

Íslenska U20 ára karlalandsliðið í handknattleik mætir Noregi í fyrramálið í fyrsta leik sínum í keppninni um sæti níu til sextán á Evrópumótinu sem fram fer í Rúmeníu.

Íslendingar tryggðu sér sæti í milliriðli mótsins eftir góðan árangur í riðlakeppninni en urðu síðan að sætta sig við tap gegn bæði Króatíu og Danmörku. Þar með missti liðið af sæti í átta liða úrslitum og leikur þess í framhaldinu um sæti níu til sextán.

Viðureign Íslands og Noregs hefst klukkan 9:00 að íslenskum tíma á morgun. Sigurvegarar úr fjórum viðureignum um sæti níu til sextán halda áfram í leikjum um 9.-12. sæti á mótinu, en tapliðin leika um 13.-16. sæti.

Leikir í keppninni um sæti níu til sextán eru:

  • Króatía – Austurríki
  • Rúmenía – Portúgal
  • Færeyjar – Ísrael
  • Ísland - Noregur

Ef Ísland hefur betur gegn Noregi mætir liðið sigurvegara úr viðureign Færeyja og Ísrael í leik um sæti 9-12. Ef íslenska liðið tapar bíður þess hins vegar leikur gegn tapliðinu úr þeirri viðureign um sæti 13-16.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top