18 ára undrabarn kallað „Lamine Yamal handboltans“
IHF)

Slóveninn Aljus Anzic er aðeins 18 ára gamall en hefur þegar vakið gríðarlega athygli á alþjóðavettvangi. Alþjóða handknattleikssambandið (IHF) hefur nú gengið svo langt að kalla leikstjórnandann „Lamine Yamal handboltans“.

Líkingin vísar til spænska knattspyrnumannsins Lamine Yamal, sem hefur slegið í gegn á unga aldri, en IHF telur að Anzic geti orðið sambærilegt stórstirni í handboltanum.

Anzic vakti fyrst heimsathygli á HM U19 landsliða síðasta sumar þegar hann átti ótrúlegan leik gegn Noregi.

Þá skoraði hann 23 mörk úr aðeins 25 skotum og sagði IHF frammistöðuna vera á pari við heimsmet.

Ungstirnið heldur áfram að sýna styrk sinn á Evrópumóti U20 landsliða sem nú fer fram í Rúmeníu.

Eftir fjóra leiki hefur Anzic þegar skorað 38 mörk og er á meðal markahæstu leikmanna mótsins.

Anzic er samningsbundinn stórliðinu RK Celje og hefur þegar fengið tækifæri með aðalliði félagsins.

Athygli vekur einnig að móðir hans, Alenka Potocnik Anzic, hefur verið forseti RK Celje frá vorinu 2025.

Frammistaða hins unga Slóvena hefur orðið til þess að sífellt fleiri líta á hann sem eitt mesta efni alþjóðlegs handbolta. Ef þróunin heldur áfram gæti hann orðið næsta stórstjarna íþróttarinnar – rétt eins og Lamine Yamal hefur orðið í knattspyrnunni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top