HK-ingar hafa sótt sér annan erlendan leikmann fyrir komandi tímabil í Olísdeild karla en félagið hefur samið við Færeyinginn Trúgva Hávardsson til næstu tveggja ára, eða út tímabilið 2027/28. Trúgvi kemur til HK frá færeyska félaginu StÍF þar sem hann hefur leikið allan sinn feril og komið upp í gegnum yngri flokka félagsins. Leikstjórnandinn segir ákvörðunina um að flytja til Íslands fyrst og fremst hafa snúist um að taka næsta skref, bæði innan vallar og utan. „Ég tel að Ísland sé frábært tækifæri fyrir mig til að þróast bæði sem handboltamaður og sem manneskja. Það er helsta ástæðan fyrir því að ég ákvað að flytja hingað.“ Áður en ákvörðunin var tekin leitaði hann ráða hjá tveimur mönnum sem þekkja vel til íslensks handbolta þeim Allan Norðberg og Bjarna í Selvindi sem gátu sagt honum mikið frá deildinni og hjálpað honum við ákvörðunina. „Ég veit að handboltinn á Íslandi er líkamlegri en í Færeyjum og að hér eru margir góðir leikmenn og öflugir þjálfarar. Það verður spennandi að takast á við það.“ Trúgvi hefur áður komið til Íslands og segir fyrstu kynni sín af landinu hafa verið afar jákvæð. „Ég hef aðeins komið einu sinni áður til Íslands og man eftir því hvað landið er fallegt. Fólkið virtist mjög vingjarnlegt og mér finnst Ísland að mörgu leyti svipa til Færeyja. Ég kann ekki tungumálið ennþá, en mig langar mjög mikið til að læra íslensku.“ Aðspurður um leikstíl sinn segir hann hraðann vera stóran þátt í sínum leik sem leikstjórnanda. Hann kom til Íslands 15. júlí og hlakkar til að hefja undirbúninginn með nýju liðsfélögunum. Þrátt fyrir miklar breytingar á leikmannahópnum er hann bjartsýnn á komandi tímabil. „Við erum með marga nýja leikmenn þannig að það verður spennandi að sjá hvernig tímabilið þróast. Markmiðið er hins vegar skýrt – við ætlum okkur að berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.