Íslenska U20 ára landslið karla í handknattleik lauk keppni á Evrópumótinu í Rúmeníu með sannfærandi 39:26-sigri á heimamönnum og tryggði sér þar með 13. sæti mótsins. Sigurinn var aldrei í hættu. Ísland náði fimm marka forskoti um miðjan fyrri hálfleik og hafði ellefu marka forskot í leikhléi, 21:10, áður en liðið sigldi öruggum sigri í höfn. „Ég er mjög ánægður með frammistöðuna í dag. Mér fannst strákarnir koma mjög vel einbeittir í leikinn og klára þetta mjög faglega,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari liðsins, eftir leik. Hann hrósaði sérstaklega varnarleik og markvörslu liðsins. „Varnarleikurinn og markvarslan var frábær allan leikinn, bæði 6-0 og 5-1 vörnin. Þar af leiðandi fengum við ótrúlega mikið af hraðaupphlaupum og seinni bylgjum sem við nýttum okkur vel. Við vorum í raun búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik.“ Ágúst var einnig ánægður með sóknarleikinn. „Sóknarleikurinn var fjölbreyttur og góður og viðhorfið hjá strákunum var frábært. Ég er mjög ánægður með þá hvernig þeir kláruðu þennan leik.“ Þrátt fyrir öruggan sigur í lokaleiknum sagði Ágúst að tilfinningarnar eftir mótið væru blendnar. „Svona stuttu eftir síðasta leik þá er alveg hægt að segja að niðurstaða mótsins séu blendnar tilfinningar. Mér fannst við spila á stórum kafla í þessu móti mjög vel. Tapleikurinn, sérstaklega gegn Króötum, situr að sjálfsögðu í okkur. Sigur þar hefði komið okkur upp í topp átta og það er oft stutt á milli á svona stórmótum.“ Hann segir þó margt jákvætt hægt að taka með sér. „Frammistaðan heilt yfir var góð en við stefndum klárlega á að vera ofar. Það er margt sem við getum tekið úr þessu móti og byggt ofan á í framhaldinu. Það verður spennandi að fylgjast með þessum strákum á heimsmeistaramótinu næsta sumar.“ Stefán Magni Hjartarson var markahæstur í íslenska liðinu með sjö mörk. Birgir Leó Stefánsson, Ágúst Guðmundsson og Bessi Teitsson skoruðu fimm mörk hver, Harri Halldórsson og Andri Erlingsson fjögur hvor. Ingvar Dagur Gunnarsson, Jens Bragi Bergþórsson og Jökull Blöndal Björnsson skoruðu tvö mörk hver, en Magnús Dagur Jónatansson, Dagur Leó Fannarsson og Antoine Óskar Pantano eitt mark hver. Alexander Ásgrímsson átti stórleik í markinu og varði 12 skot, sem jafngildir 50 prósenta markvörslu, en Jens Sigurðsson bætti við fimm vörðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.