Ég fann að Ísland væri hið fullkomna næsta skref á ferlinum
(Þór Handbolti)

Daninn William Skovsager er nýr leikmaður Þórs Akureyrar en rétthenta skyttan kemur til félagsins frá Kyndli í Færeyjum þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Skovsager er fæddur árið 2001 í Skive í Danmörku og segir ákvörðunina um að flytja til Íslands hafa verið eðlilegt næsta skref á ferlinum.

Hann segir dvölina í Færeyjum hafa breytt miklu fyrir sig, bæði innan vallar sem utan.

„Eftir að ég flutti til Færeyja til að spila handbolta áttaði ég mig á því að ég varð ekki aðeins ástfanginn af handboltanum heldur líka öllu því sem fylgir því að búa erlendis. Að kynnast nýjum stað, hitta nýtt fólk og upplifa ólíka menningu hefur verið ótrúlegt ferðalag. Ég elska handboltann og er þakklátur fyrir að fá tækifæri til að spila utan Danmerkur á meðan ég held áfram að þróast sem leikmaður.“

Áður en hann tók ákvörðunina um að flytja til Íslands ræddi hann mikið við tengdaföður sinn, sem er frá Akureyri.

„Undanfarin þrjú ár í Færeyjum hef ég átt tengdaföður sem er frá Íslandi, nánar tiltekið frá Akureyri. Við höfum rætt íslensku deildina mikið og hann hefur oft sagt mér að það gæti verið frábært tækifæri fyrir mig að prófa mig á hærra getustigi. Sú staðreynd að ég sé að flytja til Akureyrar gerir þetta enn sérstakara, því bæði kærastan mín og tengdafaðir þekkja bæinn mjög vel.“

Skovsager segist hafa fylgst vel með Olísdeildinni síðustu ár og hafi smám saman sannfærst um að Ísland væri rétti áfangastaðurinn eftir að hafa horft á marga leiki úr deildinni. Hann telur að þetta skref sé fullkomið fyrir næsta skref á ferlinum og honum hlakkar að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.

Þótt hann hafi aldrei áður komið til Íslands hefur hann heyrt margt gott um landið. „Ég hef aldrei komið til Íslands áður en hef heyrt ótal góða hluti um landið. Mér hefur verið sagt að það sé einstakur staður með stórbrotinni náttúru og fullt af tækifærum til að upplifa eftirminnilega hluti.“

Aðspurður um leikstíl sinn segir Skovsager að hann vilji spila af krafti og sækja beint á varnir andstæðinganna og skapa einn á einn stöður sem vonandi skili færi fyrir sig eða mennina í kringum sig.

Markmið hans fyrir komandi tímabil eru skýr. „Ég vona að ég geti hjálpað Þór að taka næsta skref sem félag. Fyrsta markmiðið er að hjálpa liðinu að komast í úrslitakeppnina, enda veit ég að það er eitt af helstu markmiðum félagsins fyrir tímabilið.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top