Íslenska U18 ára landslið karla hafði betur gegn Færeyjum 40-28 í síðari vináttulandsleik þjóðanna sem fram fór í Hertz-höllinni fyrr í dag. Staðan var 23-14 í hálfleik. Strákarnir okkar áttu frábæran fyrri hálfleik og lögðu grunninn að sigrinum þar og leiddu með 9 mörkum í hálfleik. Færeyingar voru án Bóas Elefsen og markmanns þeirra frá leiknum í gær og munaði um minna þar sem Ísland voru miklu betri í dag eftir jafnari leik í gær. Brynjar Narfi Arndal og Alex Unnar Hallgrímsson voru markahæstir hjá íslenska liðinu í dag með 5 mörk. Bjarki Snorrason, Ómar Darri Sigurgeirsson og Gunnar Róbertsson skoruðu allir 4 mörk. Patrekur Smári Arnarsson, Anton Frans Sigurðsson, Sigurður Atli Ragnarsson og Matthías Dagur Þorsteinsson voru allir með 3 mörk. Kristófer Tómas Gíslason og Freyr Aronsson skoruðu 2 mörk. Logi Finnsson og Ragnar Hilmarsson skoruðu 1 mark hvor. Þetta var síðari leikur liðanna í undirbúningi fyrir Evrópumótið sem hefst hjá liðunum í lok júlí.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.