Odense Håndbold gæti óvart hafa gefið í skyn hver næsti leikmaður félagsins verður. Það er Europamester sem greinir frá. Orðrómur hefur verið uppi um að vinstri hornamaðurinn Matilde Vestergaard gangi til liðs við danska meistaraliðið í stað Önnu Grundtvig, sem greindi nýverið frá því að hún ætti von á barni. Á efni sem Odense birti frá fyrstu æfingum tímabilsins á Instagram má sjá einstakling sem líkist Vestergaard. Þá sést einnig vatnsbrúsi merktur númeri 17, en það númer er ekki í notkun hjá neinum leikmanni í núverandi leikmannahópi félagsins. Vestergaard lék með númer 17 hjá HH Elite á síðasta tímabili og hefur enn ekki verið kynnt til leiks hjá nýju félagi. Odense hefur ekki staðfest félagaskiptin, en myndirnar hafa aðeins ýtt undir orðróminn um að Vestergaard sé á leið til félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.