Eins og Handkastið greindi frá á dögunum verður ekkert úr því að markvörðurinn, Sigurjón Guðmundsson haldi heim til Íslands frá Kolstad en hann var eftirsóttur af félögum í Olís-deildinni. Félög á borð við Val og Fram höfðu sýnt leikmanninum áhuga. Handkastið greindi fyrst allra fjölmiðla frá því að Sigurjón væri á leið til norska úrvalsdeildarfélagsins, Sandefjord og staðfesti Sigurjón það stuttu síðar í samtali við Handkastið. Nú er Sigurjón meðal annars byrjaður að æfa með nýja liðinu en Sigurjóni er ætlað að fylla skarð Þjóðverjans, Phil Döhler sem lék með Sandefjord á síðustu leiktíð en skipti yfir til Amo í Svíþjóð í sumar. Phil Döhler lék á sínum tíma með FH í Olís-deild karla. Sigurjón sem er uppalinn hjá HK og er sonur Guðmundar Hrafnkelssonar hefur heldur betur slegið í gegn með frammistöðu sinni hjá norska stórliðinu Kolstad. Eftir að Andreas Palicka yfirgaf félagið í janúar vegna fjárhagsvandræða fékk Sigurjón stærra verkefni hjá liðinu og átti hann frábæra leiki þegar Kolstad tryggði sér norska meistaratitilinn eftir sigur á Ísaki Steinssyni og félögum í Drammen.


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.