Egypska U18 kvennalandsliðið setti hvert heimsmetið á fætur öðru þegar liðið vann Fídjí 83:17 á heimsmeistaramóti U18. Egyptar höfðu þegar tryggt sér sæti í milliriðli ásamt tveimur stigum og gátu því leyft sér að dreifa álaginu á leikmannahópinn. Það hafði þó engin áhrif á ákefð liðsins sem réði lögum og lofum frá fyrstu mínútu. Egyptaland hóf leikinn með 4-0 kafla áður en Ivamere Buituni skoraði fyrsta mark Fídjí á fjórðu mínútu. Það var jafnframt fljótasta mark sem Kyrrahafseyjan hefur skorað á U18 heimsmeistaramóti kvenna. Eftir það tóku Egyptar algjör völd á vellinum. Eftir aðeins fimmtán mínútur var staðan orðin 24-4 og fyrir leikhlé hafði liðið skorað heil 43 mörk. Það er nýtt met yfir flest mörk sem eitt lið hefur skorað í einum hálfleik á U18 heimsmeistaramóti kvenna. Síðari hálfleikurinn þróaðist með svipuðum hætti. Egyptar héldu áfram að keyra upp hraðann og þvinguðu Fídjí til hvorki meira né minna en 70 tapaðra bolta, sem skilaði þeim fjölmörgum auðveldum hraðaupphlaupum. Leiknum lauk með 83-17 sigri Egypta og þar með féllu nokkur stór met: Allir 13 útileikmenn Egyptalands komust á blað í leiknum. Markahæst var Yasmine Farrag með átta mörk. Fídjí átti engu að síður sinn besta sóknarleik á mótinu til þessa og skoraði 17 mörk. Ivamere Buituni var markahæst með fimm mörk. Leikurinn verður því skráður í sögubækurnar sem einn markahæsti og einhliða leikur sem sést hefur á heimsmeistaramóti U18 kvenna.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.