Keppni á U18 Evrópumóti karla í handbolta stendur nú sem hæst í Serbíu og baráttan um markakóngstitilinn er farin að harðna þegar komið er vel inn í mótið. Færeyska stórskyttan Boas Ellefsen á Skipagøtu, sem lengi vel leiddi markalistann, hefur nú fallið niður í þriðja sæti eftir að tveir leikmenn fóru fram úr honum. Í efsta sæti er nú Yonathan Pelach frá Ísrael með 56 mörk. Pelach tók forystuna með því að skora 14 mörk gegn Sviss og önnur 14 gegn Svartfjallalandi í milliriðlinum. Skammt á eftir honum er Jakub Valent frá Slóvakíu með 48 mörk, en hann skoraði 10 mörk gegn Austurríki og 13 gegn Finnlandi. Hinn færeyski, Boas hefur skorað 44 mörk og er áfram í harðri baráttunni um markakóngstitil mótsins. Tveir íslenskir leikmenn eru einnig á meðal 25 markahæstu leikmanna mótsins. Freyr Aronsson er í 12. sæti með 28 mörk og Gunnar Róbertsson í 19. sæti með 23 mörk. Íslenska liðið verður í eldlínunni á morgun klukkan 15:00 þegar liðið mætir Þýskalandi í 8-liða úrslitum mótsins. Hér að neðan má sjá lista yfir markahæstu leikmenn mótsins.Sæti Leikmaður Þjóð Mörk 1 Yonathan Pelach Ísrael 56 2 Jakub Valent Slóvakía 48 3 Boas Ellefsen á Skipagøtu Færeyjar 44 4 Danilo Gutić Svartfjallaland 36 4 Emil Kvistgaard Bakery Danmörk 36 6 Jaka Podvrsic Slóvenía 34 7 Boban Popovski Norður-Makedónía 33 8 Bence Ambrus Ungverjaland 32 9 Adrian Sola Basterra Spánn 31 10 Markus Kelih Austurríki 29 10 Theodor Klarskov Knudsen Danmörk 29 12 Freyr Aronsson Ísland 28 13 Hannes Carlsson Svíþjóð 26 13 Nuno Sousa Marques Portúgal 26 15 Geva Dgani Ísrael 25 16 Roberto Lucas Pitt Króatía 24 16 Vincent Faciejew Þýskaland 24 16 Filip Blecic Serbía 24 19 Gunnar Róbertsson Ísland 23 19 Luka Kaludjerovic Svartfjallaland 23 19 Zalan Juhasz-Toth Ungverjaland 23 22 David Bajan Króatía 22 22 Isaac Saillard Frakkland 22 24 Mateusz Tkaczyk Pólland 21 25 Trajche Kostov Norður-Makedónía 21

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.