Freyr Arons meðal markahæstu leikmanna EM U18
EHF

Freyr Aronsson leikmaður Hauka í Olís-deild karla átti frábært Evrópumót með íslenska U18 ára landsliðinu sem hafnaði í fimmta sæti á EM í Serbíu.

Freyr var einn af mikilvægustu leikmönnum íslenska liðsins á mótinu og bar oft á köflum uppi sóknarleik liðsins. Hann skoraði alls 57 mörk í átta leikjum og hafnaði í 9. sæti yfir markahæstu leikmenn mótsins.

Freyr er einn af mest spennandi ungu leikmönnum Olís-deildarinnar en hann var í stóru hlutverki með sínu liði á síðustu leiktíð en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar. Freyr var með 7,1 mark að meðaltali í leik á Evrópumótinu og skoraði meðal annars 11 mörk gegn Portúgal þegar Ísland tryggði sér sæti í átta liða úrslitum.

Ísland vann sjö af átta leikjum sínum á mótinu. Eini ósigurinn kom gegn Þýskalandi í átta liða úrslitum, en Þjóðverjar urðu að lokum Evrópumeistarar.

Markahæstu leikmenn EM U18

  1. Yonathan Pelach - Ísrael – 97 mörk
  2. Boas Ellefsen á Skipagøtu - Færeyjum – 94 mörk
  3. Janis Thomann - Sviss – 66 mörk
  4. Adrian Basterra Sola - Spáni – 65 mörk
  5. Jakub Valent - Slóvakíu – 62 mörk
  6. Nuno Marques Sousa - Portúgal – 58 mörk
  7. Emil Kvistgaard Bak - Danmörku – 58 mörk
  8. Freyr Aronsson - Íslandi – 57 mörk
  9. Hannes Carlsson- Svíþjóð – 57 mörk
  10. Matej Stochl - Tékklandi – 55 mörk

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top