Spánn heimsmeistari U18 kvenna annað mótið í röð
IHF

Spánn varð heimsmeistari í U18 ára kvennaflokki í handbolta annað mótið í röð eftir sigur á Svartfjallalandi í úrslitaleik en mótið fór fram í Rúmeníu.

Spánn tryggði sér heimsmeistaratitilinn um helgina þegar liðið lagði Svartfjallaland 26–23, í úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Pitești í Rúmeníu.

Svartfjallaland fór með eins marks forystu inn í hálfleikinn í stöðunni 12–11 og komst í allt að þriggja marka forystu í síðari hálfleik. Spánverjar sýndu hins vegar mikinn styrk sinn þegar mest á reyndi og sneru leiknum sér í hag.

Með sigrinum varð Spánn heimsmeistari annað mótið í röð og er aðeins önnur þjóðin í sögu keppninnar sem nær þeim árangri. Rússland hafði áður unnið U18-heimsmeistaramótið tvö mót í röð, árin 2016 og 2018.

Danmörk tryggði sér bronsverðlaunin eftir sigur á Egyptalandi 23–19, í leiknum um þriðja sætið en Egyptaland og Kína komu mörgum á óvart með sinni spilamennsku á mótinu.

Lokastaðan:
1. Spánn
2. Svartfjallaland
3. Danmörk

A group of athletes in red and blue uniforms celebrate with a large silver trophy, smiling and cheering while wearing medals.
Ceremony, 11th IHF Women’s Youth (U18) World Championship, , Romania, 09.08.2026, Mandatory Credit © Anze Malovrh / kolektiff

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top