Íslandsmeistararnir höfðu betur gegn færeysku meisturunum
Jens Kr Wang

Íslands- og deildarmeistarar Vals unnu færeysku meistarana í H71 með fjórum mörkum fyrr í dag í lokaleik liðanna á Wenzel Cup sem fram fór í Færeyjum um helgina.

Valur vann leikinn 31-27 eftir að hafa verið 16-14 yfir í hálfleik.

Um var að ræða fyrsta og eina sigur Vals á mótinu en áður hafði liðið tapað gegn GOG og Kiel á þessu gríðarlega sterka æfingamóti.

Gunnar Róbertsson var markahæstur í liði Vals með átta mörk ásamt Færeyingnum, Bjarna í Selvindi. Allan Norðberg skoraði fimm mörk og Arnór Snær Óskarsson þrjú ásamt Andra Finnssyni. Dagur Leó Fannarsson skoraði tvö mörk og þeir Bessi Teitsson og Ágúst Ingi Óskarsson skoruðu eitt mark hvor.

Hjá H71 var Helgi Hildarson Hoydal markahæstur með átta mörk og Boas Ellefsen á Skipagötu skoraði fimm mörk.

Fyrr í dag hafði Kiel betur gegn GOG í sama móti, 31-27. Domen Makuc var markahæstur hjá Kiel í leiknum með átta mörk og Færeyingurinn, Elias Ellefsen á Skipagötu skoraði sex mörk.  Hjá GOG var Manuel Zehnder markahæstur með níu mörk og Óli Mittún skoraði fimm.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top