Íslendingar í eldlínunni á Norðurlöndunum í vetur
Savehof

Nú styttist óðum í að deildarkeppnirnar á Norðurlöndunum fari af stað en meistari meistaranna í Danmörku fer fram um helgina þegar Álaborg tekur á móti Kristjáni Erni Kristjánssyni, Donna og félögum í Skanderborg.

Fyrsta umferðin í deildinni fer síðan fram í næstu viku en þar er meðal annars Íslendingaslagur þegar Donni og félagar taka á móti Ísaki Gústafssyni og félögum hans í Ringsted.

Aðrir Íslendingar í deildinni eru þeir Jóhannes Berg Andrason og Benedikt Gunnar Óskarsson sem spila með TTH Holstebro en þeir taka á móti Bjerringbro/Silkeborg í fyrstu umferðinni á meðan Elvar Ásgeirsson og samherjar hans í Ribe-Esbjerg taka á móti Mors-Thy.

Í næstefstu deild í kvenna þar í landi má finna þær Ingu Dís Jóhannsdóttur og Thelmu Melsteð en þær spila með Rødovre og þeirra fyrsti leikur er 30.ágúst.

Í Noregi byrja Dana Björg Guðmundsdóttir og liðsfélagar hennar í Larvik á heimaleik gegn Fana þann 30.ágúst en í karladeildinni má finna fjögur Íslendingalið en karladeildin hefst 29.ágúst en að þessu sinni er enginn Íslendingur í Kolstad á meðan Tryggvi Garðar Jónsson er kominn í Viking, Sigurjón Guðmundsson stendur vaktina í markinu hjá Sandefjord, Tryggvi Þórisson er ennþá í Elverum og Ísak Steinsson er áfram í markvarðateymi Drammen.

Í Svíþjóð fer deildin ekki af stað fyrr en seint í september en þangað til er spilað í sænska bikarnum. Elín Klara Þorkelsdóttir er ennþá leikmaður meistaranna í Sävehof en þær hefja leik í bikarnum á morgun.

Í karlaliði Sävehof má finna Birgi Stein Jónsson á meðan Arnar Birkir Hálfdánarson er áfram í Amo. Í Karlskrona er Arnór Viðarsson að spila stórt hlutverk á meðan sænsku meistararnir Kristianstad er með heila þrjá Íslendinga innan sinna raða en Einar Bragi Aðalsteinsson er áfram í stóru hlutverki og þeir Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason gengu til liðs við liðið í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top