Sigur í fyrsta leik hjá Díönu og Elínu Rósu
ANGELIKA WARMUTH / AFP

Þýskalandsmeistararnir og Íslendingaliðið, Blomberg-Lippe vann 37-34 sigur gegn Göppingen í 1. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í gær.

Þýska landsliðskonan Nieke Kühne var markahæst hjá Blomberg Lippe með níu mörk. Íslensku landsliðskonurnar, skoruðu fimm mörk samtals. Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði þrjú mörk og Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk.

Þá gaf Díana Dögg tvær stoðsendingar í leiknum en Blomberg-Lippe var tveimur mörkum yfir í hálfleik 18-16. Göppingen jafnaði metin í 19-19 en þá kom 7-1 kafli hjá Blomberg Lippe sem gerði nánast útum leikinn.

Blomberg Lippe vann Þýskalandsmeistaratitilinn eftir sigur á Dortmund í oddaleik í vor með þrjá Íslendinga í liðinu. Nú eru þeir einungis tveir eftir að Andrea Jacobsen gekk í raðir ÍBV í sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top