Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeild kvenna í dag þar sem Lilja Ágústsdóttir var í eldlínunni með BSV Sachsen Zwickau. Thüringer HC fór vel af stað á nýju tímabili með 34–27 sigri á Buxtehuder SV á heimavelli. Thüringer var með yfirhöndina frá upphafi og leiddi 15–10 í hálfleik. Heimakonur komust snemma í 12–6 og héldu góðu forskoti eftir hlé. Munurinn varð mestur tíu mörk, 34–24, áður en Buxtehude lagaði stöðuna undir lokin. Levke Kretschmann var markahæst hjá Thüringer með sjö mörk, en Jana Scheib og Teresa von Prittwitz skoruðu fimm hvor. Alfa Brá Hagalín var ekki í leikmannahópi Thüringer í leiknum vegna meiðsla. Á sama tíma lék Lilja Ágústsdóttir sinn fyrsta deildarleik fyrir BSV Sachsen Zwickau. Zwickau gerði 30–30 jafntefli við VfL Oldenburg, eftir að Oldenburg hafði leitt 15–13 í hálfleik. Zwickau þurfti því að hafa fyrir stiginu og tryggði sér að lokum jafntefli á heimavelli. Lilja, sem gekk í raðir Zwickau frá Val í sumar, átti flottan frumraun í deildinni. Hún skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum. Þá vann TuS Metzingen góðan útisigur á Union Halle-Neustadt, 32–30. Metzingen hafði einnig yfirhöndina í hálfleik, 15–13, og hélt heimakonum frá sér í síðari hálfleik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.