Lilja skoraði tvö í naumu tapi Zwickau
Zwickau

Lilja Ágústsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Zwickau þegar liðið tapaði naumlega fyrir Göppingen, 29–28, á útivelli í þýsku Bundesligunni í kvöld.

Göppingen var fjórum mörkum yfir um miðjan fyrri hálfleik en Zwickau vann sig inn í leikinn og komst yfir í fyrsta sinn í stöðunni 14–13. Heimakonur áttu lokaorð hálfleiksins og leiddu með einu marki í leikhléi, 16–15.

Göppingen náði fjögurra marka forskoti í síðari hálfleik en Zwickau neitaði að gefast upp. Gestirnir jöfnuðu metin í 28–28 undir lokin en Göppingen skoraði sigurmarkið og tryggði sér 29–28 sigur. Zwickau hefur eitt stig eftir fyrstu tvo leiki sína í deildinni.

Úrslit dagsins:

Buxtehuder SV – HC Leipzig 26–23 (9–10)
HSG Bensheim/Auerbach – Union Halle-Neustadt 33–33 (19–20)
Göppingen – Zwickau 29–28 (16–15)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top