Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og liðsfélagar hennar í Thüringer HC unnu stórsigur á VfL Oldenburg, 41-30, á útivelli í þýsku Bundesligunni í gær. Thüringer hefur þar með unnið báða leiki sína í upphafi tímabilsins. Thüringer byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 8-3 eftir ellefu mínútur. Oldenburg vann sig aftur inn í leikinn og jafnaði í 9-9 en gestirnir náðu aftur undirtökunum fyrir hlé og leiddu 19-16 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Thüringer gerði síðan út um leikinn í síðari hálfleik. Liðið náði níu marka forskoti, 31-22, um miðjan hálfleikinn og hélt áfram að auka muninn áður en lokatölur urðu 41-30. Alfa Brá kom við sögu hjá Thüringer en komst ekki á blað í markaskorun. Jana Scheib fór mikinn og var markahæst með tíu mörk, þar af hafði hún skorað níu þegar í hálfleik. Japanski leikstjórnandinn Natsuki Aizawa átti einnig stórleik og gaf ellefu stoðsendingar. Thüringer hefur því farið afar vel af stað í deildinni. Liðið vann Buxtehude 34-27 í fyrstu umferð og fylgdi þeim sigri eftir með ellefu marka útisigri í Oldenburg í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.