Óðinn og Thea fögnuðu – svekkjandi frumraun Þorvaldar
sportuldoljean

Íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni víða um Evrópu í gær. Óðinn Þór Ríkharðsson og Thea Imani Sturludóttir fögnuðu sigrum með sínum liðum í Sviss og Rúmeníu á meðan Þorvaldur Örn Þorvaldsson og félagar í Wybrzeże Gdansk máttu þola óvænt eins marks tap á heimavelli í Póllandi.

Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Kadetten Schaffhausen unnu góðan tveggja marka sigur á BSV Bern, 31-29, í svissnesku úrvalsdeildinni í dag.

Óðinn Þór var atkvæðamikill í liði Kadetten og lét vel að sér kveða í sóknarleik svissnesku meistaranna.

Kadetten heldur því áfram góðri byrjun sinni á tímabilinu en liðið hefur verið ráðandi afl í svissneskum handbolta undanfarin ár.

Þorvaldur Örn Þorvaldsson lék sinn fyrsta deildarleik fyrir PGE Wybrzeże Gdansk þegar liðið tók á móti Zepter KPR Legionowo í fyrstu umferð pólsku úrvalsdeildarinnar.

Leikurinn varð hins vegar ekki sú byrjun sem Gdansk hafði vonast eftir. Liðin voru jöfn í hálfleik, 17-17, og spennan hélst allt til loka en Legionowo hafði að lokum betur, 34-33. Úrslitin verða að teljast nokkuð óvænt enda, endaði Wybrzeże í 3.sæti deildarinnar á síðasta tímabili.

Þorvaldur skoraði eitt mark í sínum fyrsta opinbera deildarleik fyrir félagið. Mikołaj Czapliński var markahæstur Gdansk með níu mörk en Lukas Morkovsky skoraði sjö.

Þorvaldur gekk til liðs við Gdansk frá Val í sumar og samdi til ársins 2029. Hann varð Íslandsmeistari með Val á síðustu leiktíð áður en hann hélt út í atvinnumennsku.

Thea áberandi í fyrsta sigri Craiova

Thea Imani Sturludóttir og liðsfélagar hennar í SCM Craiova fögnuðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu í rúmensku úrvalsdeildinni þegar liðið vann CSM Iași á útivelli, 27-24.

Heimakonur í Iași voru marki yfir í hálfleik, 13-12, en Craiova sneri leiknum sér í hag eftir hlé. Gestirnir skoruðu fimm mörk í röð eftir að hafa verið 13-12 undir og náðu í kjölfarið undirtökunum. Iași minnkaði muninn í eitt mark nokkrum sinnum og síðast í 24-23 þegar þrjár mínútur voru eftir, en Craiova var sterkara á lokasprettinum.

Thea var ein af lykilkonum Craiova í sigrinum. Hún og ungverska landsliðskonan Rebeka Pődör skoruðu samanlagt 15 af 27 mörkum liðsins, eða meira en helming marka Craiova en Thea skoraði sjálf sjö mörk í leiknum.

Sigurinn var sá fyrsti hjá Craiova á tímabilinu eftir 32-32 jafntefli gegn Slatina í 1. umferð. Thea gekk til liðs við Craiova frá Val í sumar eftir afar farsælan tíma á Hlíðarenda þar sem hún varð meðal annars þrívegis Íslandsmeistari og Evrópubikarmeistari.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top