Thea Imani í liði umferðarinnar í Rúmeníu
sportuldoljean

Thea Imani Sturludóttir hefur farið vel af stað með SCM Craiova í rúmensku úrvalsdeildinni en íslenska landsliðskonan var valin í lið umferðarinnar eftir frammistöðu sína um helgina.

Thea Imani átti stóran þátt í 27-24 útisigri Craiova á CSM Iași og skoraði sjö mörk í leiknum. Þetta var fyrsti sigur Craiova á tímabilinu eftir 32-32 jafntefli gegn Slatina í fyrstu umferð.

Thea og ungverska landsliðskonan Rebeka Pődör voru burðarásar í sóknarleik Craiova og skoruðu samanlagt 15 af 27 mörkum liðsins. Pődör skoraði átta og Thea sjö. Frammistaða Theu vakti athygli og í kjölfarið var hún valin í lið umferðarinnar í rúmensku úrvalsdeildinni.

Thea gekk til liðs við Craiova frá Val í sumar eftir afar farsælan tíma á Hlíðarenda. Hún varð meðal annars þrívegis Íslandsmeistari með Val auk þess að verða Evrópubikarmeistari með liðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top