Þrír leikir fóru fram á Norðurlöndunum í kvöld en Larvik hélt áfram á sigurbraut í norsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann Utleira á heimavelli, 25-21. Dana Björg Guðmundsdóttir skoraði eitt mark úr þremur skotum fyrir Larvik en liðið er ósigrað með sex stig eftir þrjá leiki og sitja í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Storhamar sem hafa þó leikið einum leik meira. Í Svíþjóð var tvíhöfði í sænska bikarnum í Partille Arena þegar karlalið Sävehof tryggði sér farseðilinn í átta liða úrslitin þrátt fyrir eins marks tap gegn Skövde, 38-39. Birgir Steinn Jónsson skoraði ekki í leiknum en fékk eina brottvísun. Kvennamegin eru átta liða úrslitin þegar hafin en meistararnir í Svíþjóð, Sävehof tóku á móti Höörs HK og unnu gríðarlega sterkan níu marka sigur, 38-29. Elín Klara Þorkelsdóttir hafði hægt um sig að þessu sinni og skoraði aðeins eitt mark og fékk eina brottvísun að auki. Úrslit dagsins: Larvik 25-21 Utleira Sävehof 38-39 Skövde Sävehof 38-29 Höörs HK

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.