Fyrrum spænska landsliðskonan Silvia Ederra er látin, 43 ára að aldri eftir langvarandi veikindi. Ederra lést þriðjudaginn 8. september, á afmælisdegi sínum. Ederra fæddist í Estella í Navarra árið 1983 og átti langan og farsælan feril í spænskum handbolta. Hún lék í 14 tímabil með S.D. Itxako áður en hún gekk til liðs við Mar Alicante og síðar Castro Urdiales. Hún lék síðan í sex tímabil með Bera Bera og vann þar alls 13 titla á Spáni. Ederra varð fimm sinnum spænskur meistari, þrisvar sinnum bikarmeistari og fimm sinnum meistari meistaranna. Ederra lék einnig með spænska A-landsliðinu og vann fyrr á ferlinum bronsverðlaun með yngri landsliði Spánar á Evrópumóti. Eftir að hafa lagt skóna á hilluna sneri Ederra aftur á handboltavöllinn með Grafometal Sporting La Rioja þar lék hún með liðinu frá 2018 til 2020 og aftur frá 2023 til 2025. Ederra hafði glímt við alvarleg veikindi en hún hafði áður greinst með æxli í eggjastokkum. Hún lauk leikmannaferlinum endanlega í maí 2025, 41 árs að aldri. Á síðasta tímabili sínu sem leikmaður var Ederra heiðruð af handknattleikssambandinu í Navarra sem besti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar. varð 43 ára.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.