Rhein-Neckar Löwen hefur tryggt sér þjónustu eins efnilegasta unga handboltamanns Þýskalands, Finn Meißner, en hinn 17 ára gamli hægri skytta gengur til liðs við félagið sumarið 2027. Meißner hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Rhein-Neckar Löwen og verður því samningsbundinn félaginu til ársins 2031. Hann leikur áfram með uppeldisfélagi sínu, SG Pforzheim/Eutingen, í þýsku 3. deildinni þar til félagaskiptin ganga í gegn næsta sumar. Meißner varð Evrópumeistari með U18 ára landsliði Þýskalands í Serbíu á dögunum. Hann skoraði meðal annars þrjú mörk í úrslitaleiknum. Þýskaland var eina þjóðin til að vinna Ísland á mótinu í 8-liða úrslitum mótsins en Ísland endaði í 5.sæti mótsins. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Meißner þegar öðlast reynslu í þýsku 3. deildinni. Hann er uppalinn hjá Pforzheim/Eutingen og hóf raunar ferilinn sem markvörður. Meißner er ekki ókunnugur Rhein-Neckar Löwen því hann tók nokkrum sinnum þátt í svokölluðum Elite-æfingum félagsins á síðustu leiktíð og hefur einnig æft með aðalliðinu. Maik Machulla, þjálfari Rhein-Neckar Löwen, segir félagið vera að fá til sín algjöran topphæfileika sem hafi þegar safnað töluverðri reynslu í 3. deildinni þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára. Hann segir metnað Meißner og vilja hans til að bæta sig falla vel að þeirri stefnu sem félagið vill fylgja.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.