Magdeburg og Füchse Berlin með örugga sigra – mikil spenna í þýsku úrvalsdeildinni
Andreas Gora /AFP

Þýska úrvalsdeildin var á fullri ferð í dag er fimm leikir voru á dagskrá í 4.umferð.

Fyrsti leikur dagsins fór fram í GETEC Arena er íslendingalið Magdeburg tók á móti lærisveinum Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar. Magdeburg byrjaði leikinn af miklum krafti og komst strax í 2-0. Wetzlar náði að halda í við heimamenn fyrstu mínúturnar og staðan var 6-4 eftir rúmar sex mínútur. Eftir það tók Magdeburg smám saman yfir leikinn. Heimamenn skoruðu nokkur mörk í röð og náðu sjö marka forskoti, 14-7, um miðjan fyrri hálfleik. Magdeburg hélt áfram að stjórna leiknum og fór með 23-14 forystu í hálfleik. Wetzlar náði ekki að minnka muninn að ráði í seinni hálfleik. Magdeburg hélt forskotinu lengst af í kringum sjö til níu mörk og var staðan meðal annars 30-21 eftir 42 mínútur. Wetzlar reyndi að hanga í heimamönnum undir lokin en Magdeburg var með leikinn í öruggum höndum og vann að lokum 38-30. Ómar Ingi skoraði 4 mörk og gaf 1 stoðsendingu, Gísli Þorgeir með 3 mörk og 4 stoðsendingar og Elvar Örn með 4 stoðsendingar í leiknum.

Annar leikur dagsins fór fram þegar íslendingalið Erlangan tók á móti lærisveinum Arnórs Þórs í Bergischer. Leikurinn bauð upp á mjög jafnan leik þar sem lítið skildi liðin að í fyrri hálfleik. Bergischer skoraði fyrsta markið en Erlangen náði fljótlega forystunni og var meðal annars 7-4 yfir á tímapunkti. Gestirnir unnu sig aftur inn í leikinn og staðan var 12-12 í hálfleik. Bergischer byrjaði seinni hálfleikinn mun betur og náði fimm marka forskoti, 19-14, eftir tæpar 40 mínútur. Erlangen svaraði hins vegar af krafti og jafnaði í 19-19. Eftir það skiptust liðin á að skora og spennan var mikil allt til loka. Erlangen komst í 28-26 en Bergischer minnkaði muninn í 28-27. Erlangen skoraði aftur áður en Bergischer minnkaði í 29-28 þegar aðeins 11 sekúndur voru eftir. Erlangen hélt út og tryggði sér nauman 29-28 sigur. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Marek Nissan úr Erlangan með 8 mörk og 2 stoðsendingar.

Þriðji leikur dagsins fór fram er Hamburg og Göppingen mættust. Hamburg byrjaði leikinn betur og náði snemma góðu forskoti, meðal annars 8-4 eftir rúmar tíu mínútur. Heimamenn héldu Göppingen í hæfilegri fjarlægð stóran hluta fyrri hálfleiks og komust mest í 14-10. Gestirnir sóttu þó á undir lok hálfleiksins og jöfnuðu í 15-15, en Hamburg skoraði síðasta markið og fór með 16-15 forystu í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mjög jafn framan af og liðin skiptust á að hafa forystuna. Göppingen tók síðan yfir um miðjan hálfleikinn og breytti stöðunni úr 22-23 í 22-27. Hamburg gafst þó ekki upp og minnkaði muninn jafnt og þétt á lokamínútunum. Þegar rúm mínúta var eftir minnkaði Hamburg í 31-32, en Göppingen hélt út og tryggði sér nauman 32-31 útisigur. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Erik Persson úr liði Göppingen með 8 mörk.

Fjórði leikur dagsins fór fram í Berlínarborg er Füchse Berlin tók á móti lærisveinum Guðjóns Vals Gummersbach. Gummersbach byrjaði leikinn betur og komst í 5-3, en Füchse Berlin svaraði fljótt og tók yfir. Heimamenn skoruðu sjö af næstu átta mörkum og breyttu stöðunni í 10-5. Berlin hélt góðu forskoti út fyrri hálfleikinn, komst mest sex mörkum yfir í 13-7, en Gummersbach minnkaði muninn fyrir hlé. Staðan var 16-13 í hálfleik. Í seinni hálfleik hélt Füchse Berlin áfram að stjórna leiknum. Gummersbach náði að minnka muninn í 18-15, en komst aldrei nær. Berlin hélt forskotinu lengst af í fjórum til fimm mörkum og var staðan 25-20 þegar rúmar tólf mínútur voru eftir. Gestirnir reyndu að saxa á forskotið undir lokin og minnkuðu í 31-28, en Berlin skoraði síðustu tvö mörkin og tryggði sér 33-28 sigur. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Mathias Gidsel í liði Berlin með 9 mörk og 6 stoðsendingar. Elliði Snær skoraði 2 mörk í leiknum.

Fimmti og seinasti leikur dagsins fór fram er Melsungen tók á móti Stuttgart. Leikurinn var jafn alveg frá fyrstu mínútu. Liðin skiptust á að hafa forystuna og staðan var meðal annars 7-7 eftir tæpar 18 mínútur. Melsungen náði síðan smá forskoti og komst í 13-10, en Stuttgart hélt sér inni í leiknum og minnkaði muninn fyrir hlé. Staðan var 15-14 í hálfleik. Jafnræðið hélt áfram í seinni hálfleik og Stuttgart jafnaði í 15-15. Melsungen náði aftur tveggja til þriggja marka forskoti en gestirnir gáfust ekki upp og jöfnuðu í 26-26 þegar rúmar sex mínútur voru eftir. Þá tóku heimamenn hins vegar öll völd, skoruðu sex mörk gegn aðeins einu marki Stuttgart á lokakaflanum og tryggðu sér að lokum 32-27 sigur. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Kai Hafner í liði Stuttgart með 7 mörk og 1 stoðsendingu. Reynir Þór skoraði 4 mörk í leiknum.

Úrslit dagsins:

Magdeburg-Wetzlar 38-30

Erlangan-Bergischer 29-28

Hamburg-Göppingen 31-32

Füchse Berlin-Gummersbach 33-28

Melsungen-Stuttgart 32-27

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top