
Sander Sagosen, leikmaður Álaborgar, verður frá keppni næstu vikurnar vegna álagsmeiðsla í mjaðmagrind. Reiknað er með að endurhæfingin taki á bilinu sex til 14 vikur. Sagosen varð fyrir meiðslunum í leik gegn Fredericia HK 2. september og lék þá áfram þrátt fyrir verki. Ítarlegar rannsóknir læknateymis Álaborgar hafa nú leitt í ljós umfang meiðslanna. „Það er auðvitað pirrandi að það geti tekið allt frá sex til 14 vikur áður en ég verð tilbúinn aftur. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að gera hléið eins stutt og mögulegt er,“ sagði Sagosen. Fjarvera Norðmannsins er mikið áfall fyrir Álaborg sem á þétt leikjaprógramm fram undan í dönsku úrvalsdeildinni, bikarkeppninni og Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.