
Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í kvöld í bæði Noregi og Svíþjóð en þar var bikarkeppnin í aðalhlutverki. Kvennalið Larvik átti leik í kvöld í bikarnum þar sem Dana Björg Guðmundsdóttir var í liðinu að venju en hún klikkaði á eina skoti sínu í kvöld þegar liðið mætti Byåsen á útivelli. Þar reyndust heimakonur öflugur og þær slógu Larvik út með flottum sigri, 30-26. Sävehof er komið í undanúrslit sænska bikarsins eftir sigur á Hammarby í miklum markaleik, 43-36. Birgir Steinn Jónsson var sem fyrr í liði heimamanna en hann skoraði eitt mark og fékk eina brottvísun að auki. Amo tókst því miður ekki að komast í undanúrslit líkt og Sävehof en þeir töpuðu fyrir Ystad á heimavelli, 31-34. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk fyrir heimamenn og fékk eina brottvísun að auki. Liðin fjögur sem eru í undanúrslitunum eru núverandi bikarmeistarar Kristianstad, Sävehof, Ystad og Helsingborg sem unnu VästeråsIrsta á útivelli í kvöld. Úrslit kvöldsins: Byåsen 30-26 Larvik Sävehof 43-36 Hammarby Amo 31-34 Ystad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.