Tomas Axnér lætur af störfum sem þjálfari danska stórliðsins Team Esbjerg að lokinni yfirstandandi leiktíð. Hann ætlar að einbeita sér alfarið að sænska kvennalandsliðinu og undirbúningi þess fyrir Ólympíuleikana árið 2028. Axnér er 56 ára gamall Svíi og samningur hans við Esbjerg rennur út næsta sumar eftir þrjú ár hjá félaginu. Esbjerg greindi frá ákvörðuninni í dag. Forráðamenn Esbjerg höfðu áhuga á að halda Axnér áfram við stjórnvölinn en hann hafnaði því. Ástæðan er sú að hann vill ekki lengur gegna tveimur þjálfarastörfum samhliða. Axnér er einnig landsliðsþjálfari Svíþjóðar og ætlar eftir tímabilið að beina allri athygli sinni að landsliðinu með það að markmiði að leiða það á Ólympíuleikana í Los Angeles árið 2028. Þar með þarf Team Esbjerg að finna nýjan aðalþjálfara fyrir næsta tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.