Díana og Elín fögnuðu sigri gegn Lilju
Timon Peters

Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir fögnuðu öruggum sigri gegn Lilju Ágústsdóttur þegar Blomberg-Lippe vann Zwickau, 31–20, í þýsku Bundesligunni í gærkvöldi.

Allar þrjár íslensku landsliðskonurnar skoruðu eitt mark í leiknum en um var að ræða leik í 4.umferð þýsku Bundesligunni.

Blomberg byrjaði af krafti og komst í 3–0 áður en Zwickau jafnaði í 4–4. Staðan var 7–5 þegar Díana Dögg skoraði sitt eina mark, en í kjölfarið tóku þýsku meistararnir öll völd á vellinum.

Blomberg breytti stöðunni úr 8–5 í 15–8 og leiddi með tíu mörkum í hálfleik, 19–9. Gestirnir áttu engin svör í síðari hálfleik og varð sigur Blomberg að lokum ellefu mörk, 31–20. Elín Rósa skoraði sitt mark þegar hún kom Blomberg í 26–15 í síðari hálfleik. Lilja komst einnig á blað og minnkaði muninn í 23–13.

Nina Ramusovic var markahæst Zwickau með átta mörk. Markvörðurinn Nicole Roth átti góðan leik fyrir Blomberg og varði ellefu skot.

Blomberg hefur farið frábærlega af stað í titilvörninni og unnið alla fjóra deildarleiki sína. Liðið er með átta stig og trónir á toppnum ásamt Borussia Dortmund. Zwickau hefur hins vegar enn ekki unnið leik, er með eitt stig eftir fjóra leiki og situr í níunda sæti.

Borussia Dortmund vann öruggan níu marka heimasigur á Halle-Neustadt, 33–24.

Dortmund hefur unnið alla fjóra leiki sína og er með átta stig líkt og Blomberg. Halle-Neustadt er hins vegar aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki.

VfL Oldenburg lagði Neckarsulm, 29–23, og er komið með fimm stig eftir fjóra leiki. Oldenburg hefur unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum. Neckarsulm hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum og er án stiga á botni deildarinnar.

Blomberg-Lippe–Zwickau 31–20 (19–9)

Borussia Dortmund–Halle-Neustadt 33–24

VfL Oldenburg–Neckarsulm 29–23

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top