Svissneski landsliðsmaðurinn Lenny Rubin er genginn til liðs við þýska Bundesligufélagið TBV Lemgo Lippe. Rubin kemur til Lemgo frá BSV Bern í heimalandinu og hefur skrifað undir samning sem gildir út yfirstandandi leiktíð. Hann mætir strax til starfa og tekur sína fyrstu æfingu með liðinu í dag. Rubin er 2,05 metrar á hæð og þrítugur að aldri. Hann skoraði 118 mörk fyrir Stuttgart í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og hefur á undanförnum árum verið einn af öflugri leikmönnum svissneska landsliðsins. Samningur hans við Stuttgart rann út í sumar og var hann lengi vel félagslaus áður en hann samdi við Bern í heimalandi sínu. Rubin þekkir vel til í þýsku Bundesligunni en hann lék áður með HSG Wetzlar áður en hann spilaði með Stuttgart. „Í Lemgo er stór og rótgróinn stuðningsmannahópur og það er vel þekkt hversu frábær stemningin er. Þess vegna er ég gríðarlega stoltur og ánægður með að vera kominn hingað og fá aftur að vera hluti af Bundesligunni,“ segir Rubin.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.