
Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Ribe-Esbjerg tók á móti Bjerringbro/Silkeborg á heimavelli sínum Blue Water Dokken í Esbjerg. Elvar Ásgeirsson var sem fyrr í liði heimamanna sem voru ósigraðir eftir fyrstu fimm leikina í deildinni. Þeir tóku það með sér inn í leikinn í kvöld og léku á alls oddi í fyrri hálfleiknum og gestirnir höfðu fá svör, staðan í hálfleik 25-14 fyrir heimamenn. Ribe-Esbjerg slökuðu aðeins á í seinni hálfleiknum en sigurinn var aldrei í hættu, lokatölur 37-28 og liðið eitt á toppi deildarinnar með ellefu stig eftir sex umferðir. Elvar skoraði sex mörk úr tíu skotum og gaf tvær stoðsendingar. GOG geta jafnað Ribe-Esbjerg á toppi deildarinnar með sigri um helgina en svo í næstu umferð mætast liðin í stórleik á heimavelli Ribe-Esbjerg. Úrslit kvöldsins: Ribe-Esbjerg 37-28 Bjerringbro/Silkeborg

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.