Urðu bikarmeistarar með ólöglega leikmenn
Peter Lindström / IFK

Sænska stórliðið IFK Kristianstad varð bikarmeistari á síðustu leiktíð þrátt fyrir að tveir lykilmenn liðsins hafi verið rangt skráðir til leiks í keppninni. Mistökin uppgötvuðust ekki fyrr en nú og leikmennirnir hafa einnig tekið þátt í bikarkeppninni á þessari leiktíð. 

Um er að ræða Albin Selin og Isaac Biel Nilsen, sem báðir léku stór hlutverk þegar Kristianstad vann sænska bikarinn á síðustu leiktíð. Selin skoraði meðal annars ellefu mörk í 40-37 sigri á Ystads IF í úrslitaleiknum en Biel Nilsen skoraði fjögur. 

Kristianstad varð einnig sænskur meistari á síðustu leiktíð og þar lék Einar Bragi Aðalsteinsson með liðinu. Hann skoraði tvö mörk í bikarúrslitaleiknum. 

Málið snýst um að Selin og Biel Nilsen voru skráðir hjá venslafélagi Kristianstad en ekki með réttum hætti hjá IFK Kristianstad fyrir bikarkeppnina. Þrátt fyrir það hafa þeir leikið með liðinu í keppninni bæði á síðustu leiktíð og þeirri yfirstandandi. 

Johan Jepson, framkvæmdastjóri Kristianstad, viðurkennir að mistök hafi verið gerð og segist hafa talið að skráning leikmannanna væri í lagi vegna samstarfs félaganna.

„Ég hafði ekki hugmynd um þetta. Eins og ég skildi þetta þá var þetta í lagi vegna samstarfssamningsins,“ sagði Jepson við Aftonbladet og bætti við að félagið vilji að sjálfsögðu fylgja reglunum. 

Mistök Kristianstad munu þó ekki kosta félagið bikarmeistaratitilinn og liðið fær að halda áfram keppni á þessari leiktíð. Leikmennirnir tveir hafa nú verið skráðir með réttum hætti en Kristianstad eru komnir í undanúrslit sænska bikarsins.

Íslendingum hefur fjölgað verulega hjá Kristianstad frá síðustu leiktíð. Auk Einars Braga leika nú Ólafur GuðmundssonAndri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason með liðinu og Gunnar Steinn Jónsson er orðinn aðstoðarþjálfari liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top