Einn leikur fór fram í danska bikarnum kvennamegin í kvöld þegar Horsens fór í heimsókn til Álaborgar og mætti EH Aalborg. Katrín Tinna Jensdóttir var sem fyrr í liði Horsens og skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum fyrir gestina sem unnu frábæran sigur á Álaborg, 26-31 eftir að staðan hafði verið 13-15 í hálfleik. Með sigrinum eru Katrín Tinna og félagar hennar komnar í átta liða úrslit bikarsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.