
Bertram Simonsen leikmaður Þórs fékk að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik eftir brot á Degi Árna Heimissyni í stöðunni 22-20 fyrir Þór. Bertram hafði skorað fjögur mörk í leiknum og gefið fimm stoðsendingar. ,,Maður hefðir haldið að þetta yrði vendipunktur í leiknum. Þórsarar eru að missa þarna lykilmann, bæði varnar og sóknarlega og hann er svolítið heilinn í sóknarleik Þórs. Í kjölfarið ná KA að jafna metin í 22-22,” sagði Sérfræðingurinn en rauða spjaldið hafði ekki slæm áhrif á Þórsarana sem unnu nágrannaslaginn með fjórum mörkum 35-31 eftir að hafa skorað fjögur síðustu mörk leiksins. ,,Það hefði verið auðvelt fyrir Þórsara að missa leikinn þarna, láta þetta fara í taugarnar á sér og pirra sig yfir þessu,” sagði Stymmi klippari áður en Sérfræðingurinn tók til máls. ,,Rauðu spjöldin sem hafa litið dagsins ljós í fyrstu leikjunum í vetur eru þónokkur en þau eru að sama skapi mjög misjöfn og það virðist ekkert vera rosalega mikil lína á bakvið ákvarðanirnar. Eitt má á þessum velli og annað má ekki á hinum vellinum. En það sem ég segi er, að þetta kemur mér ekkert gríðarlega á óvart. Þegar VAR er í boði, þá eru dómarnir að fara 3-6 sinnum í leik og skoða skjáinn. Þegar þú ert með leik eins og KA- Þór, fullt hús af áhorfendum og mikið undir. Eitthvað svona sem gerist hratt, ef það hefði verið VAR, þá hefðu dómarnir farið í VAR og þeir hefðu farið í VAR oftar en einu sinni í þessum leik. Þegar maður horfir á leiki sem eru í stórri útsendingu með VAR og maður sér að dómarnir eru farnir að skoða skjáinn eftir sjö mínútur, eftir 13 mínútur... þá hugsar maður: Jájá og þetta eru mennirnir sem maður á að treysta til að taka réttar ákvarðanir þegar VAR er ekki til staðar." Frekar var rætt um dómgæsluna í Olís-deildunum hingað til í uppgjörsþætti Handkastsins.
Rætt var um ákvörðun dómarana í nýjasta þætti Handkastsins.
,,Rauða spjaldið sem Bertram fær í þessum leik, hvernig fá fóstbræður okkar þetta út fyrir norðan? Þórsarar voru bilaðir yfir þessu. Þórsarar eru með leikinn og tveimur mörkum yfir þegar þetta gerist," sagði Stymmi klippari þegar rætt var um rauða spjaldið sem Bertram Simonsen leikmaður Þórs fékk gegn KA í nágrannaslagnum í gær í stöðunni 22-20 fyrir Þór.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.