
Hannover-Burgdorf vann Bietigheim, 31-29, í eina leik dagsins í þýsku Bundesligunni í handknattleik. Staðan í hálfleik var 17-11 fyrir Hannover. Sigvaldi Björn Guðjónsson var áfram fjarverandi hjá Hannover vegna meiðsla og hefur enn ekki leikið með liðinu á tímabilinu. Sigvaldi gekk til liðs við félagið frá norska liðinu Kolstad í sumar. Bietigheim byrjaði betur en um miðjan fyrri hálfleik tóku gestirnir völdin. Sebastian Heymann kom Hannover yfir, 9-8, áður en Marian Michalczik og August Pedersen juku forskotið í 11-8. Bietigheim gekk illa að koma boltanum í netið og skoraði ekki í tæpar átta mínútur. Hannover nýtti sér það og fór með sex marka forskot inn í hálfleikinn, 17-11. Gestirnir héldu áfram að bæta við forskotið og komust níu mörkum yfir, 22-13, snemma í síðari hálfleik. Bietigheim svaraði með fjórum mörkum í röð og minnkaði síðar muninn í þrjú mörk þegar þrjár mínútur voru eftir. Heimamenn komust þó ekki nær og Hannover fagnaði að lokum 31-29 sigri. Þetta var fyrsti útisigur liðsins á tímabilinu. August Pedersen var markahæstur Hannover með sjö mörk. Renars Uscins og Jonathan Edvardsson skoruðu fimm mörk hvor. Till Hermann var markahæstur Bietigheim með fjögur mörk. Markverðirnir létu einnig að sér kveða. Martin Tomovski varði tólf skot fyrir Bietigheim og Joel Birlehm ellefu fyrir Hannover.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.