Kristianstad í bikarúrslit og Elverum áfram á sigurbraut
Kristianstad

Þrjú Íslendingalið áttu leik í dag í Danmörku, Svíþjóð og Noregi en helst ber að nefna að Kristianstad gat tryggt sér sæti í bikarúrslitin í Svíþjóð.

Við byrjum í Danmörku þar sem Ringsted tók á móti Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni en Ringsted saknaði áfram Ísaks Gústafssonar sem er frá vegna meiðsla. Staðan í hálfleik var 14-17 fyrir gestina sem héldu áfram í síðari hálfleiknum og sóttu tvö mikilvæg stig til Ringsted og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 28-32. Ringsted eru áfram neðstir í deildinni með aðeins eitt stig og þurfa bráðnauðsynlega að fara vinna leiki ef ekki á illa að fara í ár. Mors kom sér upp í topp 8 með sigrinum og sitja í sjöunda sæti með 6 stig.

Í Svíþjóð mættust Kristianstad og Helsingborg í undanúrslit bikarsins en Kristianstad eru núverandi bikarmeistarar og geta því enn varið titilinn. Gestirnir voru gríðarlega vel stemmdir og reyndust öflugri til að byrja með og leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 17-21. En heimamenn í Kristianstad eru með sterkt lið og þeim tókst að jafna leikinn þegar minna en átta mínútur voru eftir og komust síðan yfir í leiknum þegar tvær mínútur voru eftir, 36-35. Gestirnir reyndu hvað þeir gátu að jafna en tókst ekki og Kristianstad eru því komnir í bikarúrslitin!

Einar Bragi Aðalsteinsson átti flottan leik fyrir heimamenn og skoraði átta mörk og fékk brottvísun að auki, Andri Erlingsson skoraði fjögur mörk, Baldur Fritz Bjarnason skoraði tvö mörk á meðan Ólafur Guðmundsson lét finna fyrir sér í vörninni og fékk eina brottvísun.

Í Noregi mættust Elverum og Kristiansand á heimavelli Elverum en heimamenn höfðu unnið alla þrjá leikina til þessa og gestirnir urðu ekki fyrsta liðið til að stoppa Elverum. Heimamenn voru allan tímann skrefinu á undan og unnu þægilegan átta marka sigur á gestunum, 32-24. Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Elverum sem eru á toppi deildarinnar ásamt Runar en bæði lið hafa unnið alla fjóra leiki sína í deildinni.

Úrslit dagsins:

Ringsted 28-32 Mors-Thy

Kristianstad 36-35 Helsingborg

Elverum 32-24 Kristiansand

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top