Alfa Brá og Lovísa í sigurliðum
Benfica

Thüringer HC vann nauman tveggja marka útisigur á Metzingen, 35-33, í þýsku Bundesligunni í dag. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín var í leikmannahópi Thüringer en komst ekki á blað.

Liðin fóru hratt af stað og staðan var 7-7 eftir tíu mínútur. Thüringer náði undirtökunum þegar leið á fyrri hálfleikinn og fór með fimm marka forskot inn í leikhlé, 20-15.

Thüringer var með góð tök á leiknum framan af síðari hálfleik og leiddi með fimm mörkum, 31-26, þegar 14 mínútur voru eftir. Metzingen neitaði hins vegar að gefast upp og minnkaði muninn í eitt mark, 33-32, þegar tvær mínútur voru til leiksloka.

Gestirnir héldu haus á lokamínútunum og tryggðu sér 35-33 sigur. Thüringer hefur þar með unnið alla fjóra leiki sína í deildinni á tímabilinu.

Levke Kretschmann, Jana Scheib og Sabrina Tröster voru markahæstar hjá Thüringer með sex mörk hver.

Lovísa Thompson og liðsfélagar hennar í Benfica unnu tveggja marka heimasigur á Gil Eanes, 32-30, í portúgölsku úrvalsdeildinni.

Lovísa lék með Benfica en komst ekki á blað. Benfica hefur unnið alla fjóra deildarleiki sína á tímabilinu og er því áfram með fullt hús stiga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top