Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín og liðsfélagar hennar í Thüringer HC tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum þýska bikarsins í gærkvöldi með sigri á Blomberg-Lippe á heimavelli, 34–31. Íslendingaslagur var í boði því með Blomberg-Lippe leika Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir. Elín Rósa skoraði tvö mörk í leiknum en Díana Dögg og Alfa Brá komust ekki á blað. Blomberg-Lippe, sem er ríkjandi Þýskalandsmeistari, leiddi í hálfleik, 14–13. Thüringer náði hins vegar undirtökunum eftir hlé og komst í 25–19 þegar stundarfjórðungur var eftir. Gestirnir minnkuðu muninn á lokakaflanum en náðu ekki að koma í veg fyrir þriggja marka sigur heimaliðsins. Luca Csikos var markahæst hjá Thüringer með sjö mörk en Jana Scheib, Natsuki Aizawa og Marcela Arounian skoruðu sex mörk hver. Hjá Blomberg-Lippe skoruðu Nieke Kühne, Maxi Mühlner og Nuria Bucher sjö mörk hver. Í Rúmeníu gerðu Thea Imani Sturludóttir og liðsfélagar hennar í SCM Craiova jafntefli við Râmnicu Vâlcea á útivelli, 26–26, í úrvalsdeildinni. Thea skoraði eitt mark úr tveimur skotum og kom Craiova yfir, 20–19, um miðbik síðari hálfleiks. Craiova hafði fimm marka forskot í hálfleik, 15–10, en heimakonur unnu muninn upp eftir hlé. Vâlcea komst síðan yfir, 24–23, áður en liðin skildu jöfn eftir spennandi lokakafla. Bæði lið eru með fimm stig að loknum fjórum umferðum en SCM Craiova hefur gert þrjú jafntefli í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.