Fjórða umferð Meistaradeildar kvenna fer fram um helgina eftir landsleikjahlé. Fimm lið hafa enn ekki tapað leik, en sviðsljósið beinist að Ungverjalandi þar sem FTC og CSM Bucuresti mætast í leik umferðarinnar. Þá freista Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir þess að ná fyrstu stigunum með Blomberg-Lippe. A-RIÐILL Félagaskipti sumarsins setja sérstakan svip á viðureignina. Elizabeth Omoregie gekk til liðs við FTC frá CSM og hefur þegar skorað 18 mörk fyrir ungverska liðið. Daria Dmitrieva fór í gagnstæða átt og er næstmarkahæst hjá CSM með 18 mörk, en Valeriia Maslova hefur skorað 23. CSM hefur haft betur í ellefu af sextán fyrri viðureignum liðanna og vann síðasta leik þeirra, 35:30, í Ungverjalandi í febrúar. Þetta verður jafnframt 280. leikur FTC í Meistaradeildinni. Jesper Jensen, þjálfari FTC, segir að liðið eigi von á sínu erfiðasta verkefni til þessa á tímabilinu. Hann er ánægður með byrjunina en telur liðið enn eiga mikið inni. Bojana Popovic, þjálfari CSM, leggur hins vegar áherslu á að hennar lið þurfi að standast álagið og stemninguna á heimavelli FTC. Esbjerg – Buducnost | Sunnudagur 4. október kl. 12:00 Henny Reistad hefur farið mikinn í upphafi keppninnar og er markahæst allra leikmanna með 30 mörk. Hún skoraði meðal annars 13 mörk gegn Krim í síðustu umferð. Buducnost hefur átt erfitt uppdráttar og hafa skorað fæst mörk allra liða, aðeins 68 mörk í þremur leikjum. Til samanburðar hefur Esbjerg skorað 98 mörk. Djurdjina Jaukovic hefur verið atkvæðamest hjá Buducnost með 21 mark. Maja Savic stýrir Buducnost í annað sinn eftir að hafa tekið við þjálfun liðsins í september. Hún freistar þess að koma liðinu á réttan kjöl gegn andstæðingi sem Buducnost hefur aldrei tekist að vinna í átta fyrri viðureignum. Esbjerg hefur unnið sjö þeirra en síðasti leikur liðanna endaði með 34:34 jafntefli. Sola – Borussia Dortmund | Sunnudagur 4. október kl. 12:00 Sola hefur hins vegar tapað öllum þremur leikjum sínum þrátt fyrir að hafa sýnt ágæta spretti gegn sterkum andstæðingum. Norðmenn hafa aðeins unnið einn leik í sögu sinni í Meistaradeildinni og freista þess nú að bæta þeim næsta við. Camilla Herrem hefur skorað 15 mörk fyrir Sola en Mareike Thomaier og Merel Freriks eru markahæstar hjá Dortmund með 13 og tólf mörk. Athyglisvert er að skotnýting liðanna er nánast sú sama. Dortmund hefur nýtt 56,8 prósent skota sinna en Sola 56,4 prósent. Liðin hafa ekki áður mæst í Meistaradeildinni en léku tvisvar gegn hvort öðru í Evrópudeildinni. Þar vann hvort lið sinn heimaleik. Steffen Stegavik, þjálfari Sola, segir að frammistaðan í fyrstu þremur leikjunum hafi verið góð á köflum en nú sé kominn tími til að breyta henni í stig. Brest – Krim | Sunnudagur 4. október kl. 14:00 Franska liðið stendur jafnframt frammi fyrir merkilegum áfanga. Brest hefur skorað 3.999 mörk í Meistaradeildinni og vantar því aðeins eitt mark til að rjúfa 4.000 marka múrinn. Þetta verður jafnframt 140. Meistaradeildarleikur félagsins. Krim nær einnig sögulegum áfanga um helgina þegar félagið leikur sinn 350. leik í keppninni. Aðeins Buducnost hefur áður náð þeim fjölda leikja. Tamara Horacek er markahæst hjá Brest með 19 mörk og Onacia Ondono fylgir með 14 mörk. Hjá Krim hafa Nina Zulic og Lana Puncer skorað 15 og tólf mörk. Brest hefur unnið fjórar af sex fyrri viðureignum liðanna. Krim hefur þó áður sýnt að það getur unnið á útivelli gegn franska liðinu, síðast í desember 2022 þegar Slóvenarnir fögnuðu 24:22 sigri. Rasmus Poulsen, þjálfari Krim, segir að leikurinn marki lok erfiðrar byrjunar þar sem liðið hefur þurft að mæta fjórum sterkum Evrópuliðum í röð. Hann leggur áherslu á að Krim sýni framfarir og byggi áfram á þeim grunni sem lagður hefur verið. B-RIÐILL Blomberg-Lippe – Podravka | Laugardagur 3. október kl. 14:00 Blomberg er að leika sitt fyrsta tímabil í keppninni og hefur tapað gegn Gloria Bistrita, Storhamar og Nykøbing Falster. Podravka hefur sömuleiðis átt erfitt uppdráttar og hefur nú tapað sex Meistaradeildarleikjum í röð ef síðasta tímabil er tekið með. Íslensku landsliðskonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir verða í sviðsljósinu hjá Blomberg. Díana Dögg hefur skorað átta mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins. Hún gerði fimm mörk gegn Storhamar og fylgdi því eftir með þremur mörkum úr fjórum skotum gegn Nykøbing. Elín Rósa skoraði ekki í síðasta leik en átti tvær stoðsendingar. Þýska liðið hefur skorað 72 mörk í fyrstu þremur umferðunum og gæti því náð sínu 100. marki í Meistaradeildinni um helgina. Hjá Podravka hefur Katarina Pandža verið áberandi og er í þriðja sæti markalistans ásamt öðrum leikmönnum með 23 mörk. Nuria Bucher, leikmaður Blomberg, segir að liðið hlakki til að leika aftur fyrir framan sína stuðningsmenn og ætli sér að berjast fyrir fyrstu stigunum. Hún leggur sérstaka áherslu á öflugan varnarleik og betri sóknarnýtingu. Metz – Nykøbing Falster | Laugardagur 3. október kl. 16:00 Í síðustu umferð vann Metz öruggan 35:24 útisigur á Podravka og nú kemur Nykøbing Falster í heimsókn. Danska liðið er með þrjú stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar og fagnaði sínum fyrsta sigri í síðustu umferð þegar það lagði Blomberg-Lippe 31:26. Clara Lerby hefur farið á kostum fyrir Nykøbing og er næstmarkahæst í Meistaradeildinni með 29 mörk, aðeins einu marki á eftir Henny Reistad hjá Esbjerg. Laura Schneider, leikmaður Metz, segir mikilvægt að halda áfram á sömu braut eftir landsleikjahléið. Hún bendir jafnframt á að liðin hafi mæst á undirbúningstímabilinu og að Metz viti því vel að Nykøbing geti skapað þeim vandræði. Györ – Gloria Bistrita | Laugardagur 3. október kl. 16:00 Györ hefur unnið alla þrjá leiki sína og er með sterkustu vörn keppninnar. Ungverska liðið hefur aðeins fengið á sig 68 mörk í fyrstu þremur umferðunum. Gloria Bistrita er hins vegar með fjögur stig og kemur til leiks eftir góðan 29:27 sigur á Odense í leik umferðarinnar. Tjaša Stanko hefur verið markahæst hjá Györ með 20 mörk en Danila So Delgado hefur skorað 16 fyrir rúmenska liðið. Estelle Nze Minko, leikmaður Györ, segir að agi og einbeiting verði lykilatriði gegn Gloria. Liðið þurfi að halda þéttum varnarleik, nýta hraðaupphlaupin þegar færi gefst og sýna þolinmæði í sókninni. Carlos Viver, þjálfari Gloria, segir Györ hafa verið viðmið í evrópskum kvennahandbolta undanfarinn áratug. Hann nefnir sérstaklega að Sarah Bouktit, Brunu de Paula, Thale Rushfeldt Deila og Dione Housheer séu þeir leikmenn sem sitt lið þurfi að hafa sérstakar gætur á. Odense – Storhamar | Sunnudagur 4. október kl. 14:00 Odense hefur þrjú stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar en Storhamar hefur unnið einn leik og tapað tveimur. Danska liðið kemur til leiks eftir tveggja marka tap gegn Gloria Bistrita í síðustu umferð, á meðan Storhamar tapaði 30:20 fyrir Györ. Viola Leuchter er markahæst hjá Odense með 16 mörk og Christina Pedersen hefur skorað 14 fyrir Storhamar. Leikurinn verður sérstakur fyrir hina norsku Tinu Abdulla sem leikur nú með Odense en hún var í herbúðum Storhamar frá 2022 til 2025. Storhamar nær jafnframt tímamótum þegar liðið leikur sinn 50. leik í Meistaradeildinni. Af fyrstu 49 leikjunum hefur norska félagið unnið ellefu, gert þrjú jafntefli og tapað 35.
FTC – CSM Búkaresti | Laugardagur 3. október kl. 14:00 – leikur umferðarinnar
Það verður sannkölluð stórviðureign í Ungverjalandi þegar FTC tekur á móti CSM Búkaresti í leik umferðarinnar. FTC hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og unnið alla þrjá leiki sína. CSM vann fyrstu tvo leikina en varð síðan fyrir óvæntu áfalli í þriðju umferð þegar liðið tapaði 35:32 gegn Borussia Dortmund eftir að hafa verið níu mörkum yfir.
Esbjerg hefur byrjað tímabilið með þremur sigrum og fær nú Buducnost í heimsókn, en svartfellska liðið er enn án stiga.
Borussia Dortmund mætir til Noregs með aukið sjálfstraust eftir ótrúlega endurkomu gegn CSM Bucuresti í síðustu umferð. Þýska liðið vann þá upp níu marka forskot og fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu, 35:32.
Brest hefur unnið alla þrjá leiki sína og fær nú Krim í heimsókn, en slóvenska liðið bíður enn eftir sínum fyrstu stigum.
Það verður mikið undir hjá HSG Blomberg-Lippe þegar liðið fær króatíska félagið Podravka í heimsókn á laugardag. Bæði lið hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum og bíða enn eftir fyrstu stigunum í Meistaradeildinni á tímabilinu.
Ríkjandi Evrópumeistarar Metz hafa byrjað tímabilið af miklum krafti og tróna á toppi B-riðils með sex stig eftir þrjá leiki. Franska liðið hefur jafnframt skorað flest mörk allra liða í keppninni, samtals 107, eða tæplega 36 mörk að meðaltali í leik.
Önnur stórviðureign ungversks og rúmensks liðs fer fram í B-riðli þegar Györ tekur á móti Gloria Bistrita.
Norræn viðureign verður í Danmörku þegar Odense tekur á móti Storhamar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.