Lilja úr leik í þýska bikarnum

Lilja Ágústsdóttir og liðsfélagar hennar í BSV Sachsen Zwickau eru úr leik í þýsku bikarkeppninni eftir níu marka tap gegn HSG Bensheim/Auerbach, 22–31, í 16-liða úrslitum keppninnar í gær.

Bensheim náði undirtökunum strax í fyrri hálfleik og var með fimm marka forskot þegar gengið var til búningsherbergja, 17–12.

Zwickau freistaði þess að koma sér aftur inn í leikinn eftir hlé en tókst ekki að ógna forskoti gestanna að ráði. Bensheim reyndist sterkara liðið og vann að lokum öruggan níu marka sigur.

Lilja komst ekki á blað hjá Zwickau í leiknum en hún átti eina skottilraun.

Norman Rentsch, þjálfari Zwickau, viðurkenndi eftir leik að Bensheim hefði verið betra liðið yfir allar 60 mínúturnar. Hann sagði sína leikmenn ekki hafa náð nægilega góðum tökum varnarlega og að liðið hefði ekki nýtt tækifærið til að koma sér aftur inn í leikinn eftir hlé.

Bikarævintýri Lilju og Zwickau er þar með lokið en liðið getur nú einbeitt sér að þýsku Bundesligunni. Næsti leikur er á útivelli gegn Halle-Neustadt næsta laugardag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top