Nú fáum við ákveðið próf á hvar við stöndum
Eyjólfur Garðarsson

ÍR hefur farið frábærlega af stað í Olís-deild kvenna og er með fullt hús stiga eftir fyrstu fjóra leiki tímabilsins. Davíð Georgsson, þjálfari liðsins, er ánægður með byrjunina en segir næstu leiki gefa betri mynd af því hvar lið hans stendur.

ÍR hefur unnið alla fjóra leiki sína í upphafi tímabilsins og situr því með átta stig á toppi deildarinnar ásamt Fram og Haukum. Davíð er ánægður með spilamennsku liðsins til þessa og nefnir sérstaklega varnarleikinn.

„Spilamennskan hefur verið heilt yfir góð. Mér finnst liðið hafa sýnt góðan karakter í þessum leikjum og er að leggja mikið á sig. Varnarleikurinn hefur verið nokkuð þéttur hjá okkur sem ég er ánægðastur með en við mættum fá fleiri auðveld mörk í kjölfarið.“

Stigasöfnunin hefur sömuleiðis verið eins góð og mögulegt er og gefur liðinu gott veganesti inn í framhaldið.

„Við settum okkur ákveðin markmið í byrjun tímabils og það er mjög sterkt að vera komnar með átta stig eftir fyrstu leikina. Það gefur okkur sjálfstraust upp á framhaldið. En við erum líka mjög meðvituð um að tímabilið er langt og það er mikilvægt að halda vel á spöðunum.“

Nú tekur hins vegar við áhugaverður kafli hjá ÍR. Næstu tveir leikir eru gegn liðum sem var spáð í toppbaráttu fyrir tímabilið og gætu þeir gefið skýrari vísbendingu um hvort ÍR sé sjálft tilbúið að blanda sér af fullum krafti í baráttuna við bestu lið deildarinnar.

„Mér finnst allir þessir leikir búnir að vera erfiðir og býst við að næstu tveir leikir verði slíkt hið sama. Þessi lið eru með mikil gæði og búa yfir mikilli reynslu svo það verður gaman að mæta þeim. Fyrstu fjórir leikirnir hafa verið góðir fyrir okkur og nú fáum við ákveðið próf á það hvar við stöndum.“

Davíð segir styrkleika deildarinnar jafnframt hafa vakið athygli sína í upphafi tímabilsins og telur að liðin geti tekið stig hvert af öðru í vetur.

„Mér finnst deildin vera sterkari og held ég að við eigum eftir að sjá mörg óvænt úrslit í vetur.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top