Gerðu allt sem þeir gátu til að taka ekki stigin
Jón Gautur Foto

HK hefur nú unnið tvo leiki í röð í Olís-deild karla þrátt fyrir mikil meiðslavandræði. Kópavogsliðið vann Stjörnuna í 5. umferð deildarinnar en dramatíkin var mikil á lokamínútunum.

Sigur HK gegn Stjörnunni var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem frammistaða HK fékk hrós, þótt liðið hafi gert sér lífið óþarflega erfitt undir lokin.

„Það að HK sé að tengja saman tvo sigurleiki í röð á sama tíma og liðið er í miklum meiðslavandræðum er virkilega vel gert hjá þeim. Þeir eru komnir með fjögur stig í meiðslavandræðum,“ sagði Arnar Daði Arnarsson.

HK fékk nokkur tækifæri til að loka leiknum en Stjarnan fékk sömuleiðis ítrekað færi á að refsa Kópavogsliðinu.

„Þetta var virkilega sterkur sigur hjá HK en samt gerðu þeir allt sem í þeirra valdi stóð til að leyfa Stjörnunni að komast inn í leikinn. Þeir réttu Stjörnunni á silfurfati trekk í trekk en Stjarnan sagði: Takk en nei takk, við viljum ekki taka þátt í þessu,“ sagði Stymmi klippari og hélt áfram:

„Á lokamínútunum fékk HK þrjár tveggja mínútna brottvísanir og þeir eru tveimur mönnum færri á tímabili en Stjarnan klúðrar tveimur vítum og dauðafærum. HK voru fjórir í sókn og skoruðu. Örn Alexandersson sker þá úr snörunni.“

Örn Alexandersson reyndist HK-ingum afar mikilvægur og var markahæsti leikmaður liðsins með átta mörk.

„Ég held að Halldór Jóhann fari skellihlæjandi með þessi tvö stig í burtu því strákarnir hans gerðu allt sem þeir gátu til að taka þau ekki,“ sagði Stymmi.

HK er þar með komið með fjögur stig eftir tvo sigurleiki í röð þrátt fyrir að hafa þurft að glíma við töluverð meiðslavandræði í upphafi tímabilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top