Kretzschmar gagnrýnir félagaskipti í handboltanum harðlega
Swen Pförtner/AFP

Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands hefur gagnrýnt harðlega þá þróun sem átt hefur sér stað í handboltaheiminum undanfarin ár þar sem leikmenn semja við ný félög löngu áður en samningar þeirra við núverandi félög renna út.

Umræða um þessi mál hefur færst í aukana eftir að Johannes Golla, fyrirliði þýska landsliðsins og línumaður MT Melsungen, lýsti yfir áhuga sínum á að snúa aftur til Flensburg-Handewitt.

Kretzschmar er afar ósáttur við þá þróun að leikmenn séu farnir að ákveða framtíð sína hjá öðrum félögum allt að tveimur árum áður en núverandi samningar þeirra renna út.

„Í grunninn er þetta algjört rugl. Það er ekki í lagi að skrifa undir samning við annað félag tveimur árum áður en núverandi samningur rennur út,“ sagði Kretzschmar samkvæmt handball-world.news.

Hann telur að þróunin sé komin út í öfgar og bendir á að í sumum tilfellum hefjist viðræður um nýja samninga nánast um leið og leikmenn hafa gengið til liðs við ný félög.

„Leikmaður kemur til nýs félags, stendur sig vel og strax er byrjað að ræða um framlengingu á samningi. Þetta er brjálæði,“ sagði Kretzschmar sem telur að handboltinn gæti lært ýmislegt af knattspyrnunni þegar kemur að reglum um félagaskipti og samningaviðræður.

Í knattspyrnu gilda reglur sem takmarka hvenær leikmenn mega hefja formlegar viðræður við önnur félög. Almennt mega leikmenn sem eru að renna út á samningi hefja slíkar viðræður án samþykkis núverandi félags þegar sex mánuðir eru eftir af samningstímanum.

Kretzschmar telur að sambærilegar reglur gætu verið til bóta í handboltanum enda sjái hann lítinn tilgang í því að leikmenn séu búnir að ákveða næsta áfangastað á ferlinum mörgum árum áður en þeir yfirgefa núverandi félag.

Mál Golla hefur vakið upp stærri spurningar um félagaskipti og samningamál í alþjóðlegum handbolta og nú velta menn því fyrir sér hvort tímabært sé að endurskoða reglurnar sem gilda um samningaviðræður leikmanna og félaga.

Eitt er víst að þetta verður ekki síðasta fréttin sem fjallar um samningsmál Johannes Golla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top