Marel bætti á sig 8 kílóum af vöðvamassa
Kristinn Steinn Traustason

Marel Baldvinsson er snúinn aftur á handboltavöllinn með Fram eftir þrettán mánaða fjarveru vegna krossbandsslita. Marel lék með Fram gegn FH í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins á dögunum og var einn af ljósu punktum liðsins þrátt fyrir stórt tap.

Framarar fögnuðu endurkomu Marels í færslu á samfélagsmiðlum sínum þar sem greint var frá því að hann hefði nýtt tímann í meiðslunum vel.

„Marel sat ekki auðum höndum í meiðslunum. Ekki nóg með að sinna endurhæfingunni af mikilli fagmennsku undir stjórn Særúnar sjúkraþjálfara, þá var hann gríðarlega duglegur að sinna líkamanum og búa sig undir komandi átök,“ segir meðal annars í færslu Fram.

Þar kemur jafnframt fram að Marel hafi bætt á sig átta kílóum af vöðvamassa á meðan hann var frá keppni og lagt mikla áherslu á skotæfingar.

„Marel bætti á sig 8 kg af vöðvamassa og stóð og skaut nær linnulaust á markið í hvert sinn sem það var laust mark í Lambhagahöllinni.“

Framarar segja Marel vera mikla fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins með fagmennsku sinni og dugnaði í endurhæfingunni. Marel verður væntanlega aftur í eldlínunni á laugardaginn þegar Fram tekur á móti FH í Olís-deild karla í 6.umferð deildarinnar en leikurinn fer fram í Lambhagahöllinni og hefst klukkan 16:30 á laugardaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top