Harpa Valey Gylfadóttir leikmaður Selfoss í Olís-deild kvenna fékk rautt spjald í stöðunni 26-18 fyrir Hauka í 5.umferð deildarinnar um síðustu helgi. Atvikið átti sér stað um miðbik seinni hálfleiks en Haukar unnu sannfærandi sigur er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sigurinn. Farið var yfir brotið í nýjasta þætti Handboltahallarinnar. ,,Fyrstu viðbrögð mín voru að þetta sé rautt. Auðvitað er þetta óviljaverk og hún er að horfa á boltann en þetta er ljótur árekstur en þetta er hárréttur dómur," sagði Rakel Dögg Bragadóttir í síðasta þætti Handboltahallarinnar. ,,Ásetningurinn er enginn og þetta er óheppni," bætti Einar Ingi Hrafnsson við. Aganefnd HSÍ tók málið fyrir á fundi sínum í gær og var það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins. Harpa Valey getur því leikið með Selfossi í mikilvægum leik liðsins gegn HK sem fer fram á Selfossi í kvöld þegar 6.umferðin hefst. Sá leikur hefst klukkan 19:00þ

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.